Vefumsjón

Viðhalds- og þjónustuleiðir fyrir WordPress vefinn þinn

Veldu hugarró í áskrift

Hvað felst í umönnun á vefsvæði?

Viðhald og vöktun á vefnum þínum, uppfærsla á vefkerfum með reglubundnum hætti og umsjón með innsetningu á efni.

Gildir frá 1. júlí 2024

Léttur 🐣
Grunnviðhald fyrir minni vefsíður

Hugarró!
Vefsvæði er vel við haldið, kerfin uppfærð og rými fyrir léttar uppfærslur á efnistökum.

kr. 9.900 + vsk á mánuði
  • Reglulegar kerfisuppfærslur
    Á WordPress, vefsniði og uppsettum viðbótum
  • 30 mínútur *
    á mánuði við uppfærslu á efnistökum
  • Aðstoð
    Í gegnum tölvupóst
  • Vöktun á uppitíma
  • Öryggisskönnun
  • Hlekkir 
    Skannað fyrir brotnum hlekkjum
  • Mánaðarleg skýrsla
    Yfirlit yfir veitta umsjón
  • Innifalin árgjöld
    Premium vefsnið og builder

Nettur 💪
Fyrir þá sem þurfa meiri kraft og sveigjanleika

Fyrir vefi sem hafa meiri viðhaldsþörf, eru með fleiri síður í veftrénu og / eða þurfa efnisinnsetningu með reglubundnum hætti.

kr. 19.900 + vsk á mánuði
  • Reglulegar kerfisuppfærslur
    Á WordPress, vefsniði og uppsettum viðbótum
  • 60 mínútur *
    á mánuði við uppfærslu á efnistökum
  • Aðstoð
    Í gegnum tölvupóst og síma
  • Vöktun á uppitíma
  • Öryggisskönnun
  • Hlekkir 
    Skannað fyrir brotnum hlekkjum
  • Mánaðarleg skýrsla
    Yfirlit yfir veitta umsjón
  • Innifalin árgjöld
    Premium vefsnið og builder
    Ulitmate og Premium Addons
  • Samfélagsmiðlar
    Tenging við FB eða Insta.
    Free version
  • Aukið öryggi
    Wordfence öryggisvirkni.
    Free version
  • Tengingar við Google þjónustur

Þéttur ⚡️
Fyrir stærri vefi í krefjandi samkeppnisumhverfi

Fyrir vefsvæði með mikla virkni, umferð eða vefverslun. Innifalið er víðtækt viðhald, ráðgjöf og forgangur í þjónustubeiðnum.

kr. 39.900 + vsk á mánuði
  • Reglulegar kerfisuppfærslur
    Á WordPress, vefsniði og uppsettum viðbótum
  • 120 mínútur *
    á mánuði við uppfærslu á efnistökum
  • Forgangsaðstoð
    Í gegnum tölvupóst og síma
  • Vöktun á uppitíma
  • Öryggisskönnun
  • Hlekkir 
    Skannað fyrir brotnum hlekkjum
  • Mánaðarleg skýrsla
    Yfirlit yfir veitta umsjón
  • Innifalin árgjöld
    Premium vefsnið og builder
    Ulitmate og Premium Addons
  • Samfélagsmiðlar
    Tenging við FB eða Insta.
    Free version
  • Aukið öryggi
    Wordfence öryggisvirkni.
    Free version
  • Tengingar við Google þjónustur

Hvað felst í vefumsjón?

Reglulegar kerfisuppfærslur

Til að hámarka öryggi og frammistöðu og til að lágmarka áhættuna á því að vefurinn verði fyrir netárásum í gegnum úrelta kerfishluta eru reglulegar uppfærslur á Word Press vefumsjónarkerfinu, vefsniði og viðbótum lykilatriði.

Sá hinn sami og setur vefsíðuna upp er án alls vafa best til þess fallinn að framkvæma þessa vinnu þar sem að handtökin við uppsetningu síðunnar eru mörg og þræðirnir fjölmargir sem að halda þarf utan um.

Öll tilboð sem gerð eru hjá Character vefstúdíó miðast við að síða fari í reglubundið viðhald að uppsetningu lokinni og eru þá árgjöld af premium vefsniði og builder (Elementor Pro) innifalin.

Endurnýjun á öðrum keyptum viðbótum eru ekki innifalin og eru greidd af verkkaupa.

Það er til lítils að fjárfesta tíma og fjármunum í að setja upp fallega og fagmannlega unna vefsíðu til þess eins að láta hana drabbast niður. Þess vegna skiptir mánaðarlegt viðhald á vefsíðunni þinni öllu mál.

Uppfærsla á efnistökum

Eftir að síða hefur verið sett upp getur alltaf komið til þess að uppfæra þurfi texta eða skipta út myndum, enda er það eðli fyrirtækja að starfsemin þróist og taki breytingum, þjónustuframboð breytist og starfsmenn komi og fari. Margir vefir eru í stöðugri þróun og þar getur verið stöðug þörf fyrir efnisinnsetningu. 

Textabreytingar, myndaútskiptingar og minniháttar lagfæringar eru innifaldar í mánaðargjaldi Þess létta (30 mín*) og Þess netta (60 mín*). * Safnast ekki upp á milli mánaða.

Reikningur er sendur í lok mánaðar fyrir umfram vinnu. Tímagjald fyrir umfram vinnu fer eftir gjaldskrá hverju sinni.

Aðstoð

Þjónusta varðandi uppfærslur á efnistökum er eingöngu veitt í gegnum tölvupóst. Beiðnir þarf að senda á netfangið birna@character.is þar sem koma fram með skýrum hætti þær breytingar sem óskað er eftir og þau gögn sem óskað er eftir að sett séu inn á síðuna látin fylgja með.

Efnistök eru uppfærð í þeirri röð sem beiðnir berast. Gera má ráð fyrir að það geti tekið allt að fimm virkum dögum að fá efnið uppfært sé álag mikið, en reynt er að bregðast við eins fljótt og auðið er.

Öryggisskönnun

Það versta við netpöddur (e. malware) er að þær geta lúrt á vefnum þínum svo vikum og mánuðum skiptir án þess að þú vitir af því. Það þarf að sýna frumkvæði og árverkni og athuga reglulega hvort öryggisveikleikar leynist í uppsetu vefsniði eða viðbótum.

Þess vegna er mikilvægt að viðhafa reglulega öryggisskönnun. Síður í umönnun eru skannaðar reglulega fyrir slíkum óværum. Einnig er skannað fyrir því hvort að vefsíðan hefur lent á svarta listanum á internetinu (e. blacklisted). Ef að upp kemst um pöddu er gripið strax til viðeigandi aðgerða til að lágmarka vesenið.

Þrátt fyrir þetta getum við ekki sagt með 100% vissu um að síðan verði ekki fyrir slíkri árás – en við gerum allt sem við getum til að tryggja að svo verði ekki. Með því að hugsa reglulega um síðuna vonumst við til að uppgötva mögulegar óværur og annað tilfallandi vesen áður en allt fer á versta veg.

Það kostar frá kr. 100,000 + VSK að hreinsa vefsvæði sem sýkst hefur af óværu og því vissara að hafa hlutina í lagi.

Vöktun á uppitíma

Vefstjóri Character vefstúdíó fær viðvörun ef vefsíða liggur niðri og hefst handa við að athuga hvar rót vandans liggur. Stundum hefur eigandi vefsíðunnar gleymt að greiða reikninga vegna léns eða hýsingar, en einnig getur eitthvað hafa komið upp hjá hýsingaraðila síðunnar.

Hlekkir

Síðurnar eru skannaðar reglulega fyrir brotnum hlekkjum og þeir uppfærðir til að ekki sé verið að vísa í „dauða“ hlekki.

Oft á tíðum breytast hlekkir hjá aðilanum sem vísað er í og hefur það ekkert með uppsetninguna að gera, sem væntanlega var rétt á þeim tíma sem efnið var sett upp.

Skýrsla vegna umönnunar

Mánaðarlegt yfirlit er sent á tölvupósti til eigenda síðunnar yfir þá umönnun sem veitt hefur verið í liðnum mánuði varðandi uppfærslur á kerfum og eftirlit með vefsvæði.

Keyptar viðbætur

Að byggja WordPress vefsíður er svolítið eins og að byggja úr Lego kubbum. Hvað þú getur byggt fer alveg eftir því hvaða kubba þú ert með í höndunum. Vefumsjónarkerfið (CSM) sjálft er grunnurinn (kubbaplatan), það er frítt og open source kerfi, en til þess að fá fram þá virkni sem óskað er eftir þarf að byggja hvern vef upp með tilliti til þess sem hann á að geta gert. Til þess þarf ólíka grind (vefsnið og builder) og kubba (viðbætur).

Þegar búið er að setja upp WordPress vefumsjónarkerfið þarf að velja vefsnið og byggingarefni (e. Theme and builder), sem ræður að miklu leiti því í hvaða umhverfi vefhönnuðurinn starfar í. Þar er mikilvægt að vanda til verka því að síða sem er byggð upp á lélegu vefsniði gerir alla viðhaldsvinnu erfiðari og takmarkar framsetningarmöguleika þess sem setur síðuna upp og sinnir henni.

Allar vefsíður sem settar eru upp af Character vefstúdíó skarta úrvals vefsniði (e. Premium Theme) og eru uppfærð reglulega. Notkun á úrvals vefsniði tryggir það að reglulega bætast inn nýjir framsetningarmöguleikar og nýjum áskorunum í öryggismálum á hinu síbreytilega interneti er svarað.

Það sama gildir um viðbætur (e. Plugins), sem eru sjálft byggingarefnið (lego kubbarnir) sem síðan er byggð úr. Úr þeim er virknin sem óskað er eftir sett upp. Sumar óskir er hægt að leysa með fríum viðbótum sem eru öllum opnar, en til þess að leysa aðrar óskir þarf að kaupa leyfi fyrir keyptum viðbótum (e. Pro / Premium Plugins). Oft eru viðbætur líka þannig að það er hægt að gera eitthvað takmarkað með því að nota fríu útgáfuna (e. free version) – en svo þarf að greiða fyrir það að opna á alla þá möguleika sem í boði eru (e. Pro / Paid version).

Keypt leyfi eru svo þannig að þau þarf að endurnýja á hverju ári til þess að viðhalda virkninni og fá aðgang að uppfærslum. Ef þessi leyfi eru ekki endurnýjuð þá hætta viðbæturnar að virka og virknin sem óskað er eftir dettur út. Þegar búið er að byggja upp vefsíðu sem skartar fjölmörgum keyptum viðbótum, þá kemur til kostnaður á hverju ári við að endurnýja þessi leyfi.

Þessi viðhaldskostnaður er ekki innifalinn í uppsetningu vefsíðunnar, heldur þarf eigandi síðunnar að greiða endurnýjunargjöldin af viðbótunum árlega til að viðhalda virkninni.

Samantekt í tölvupósti á GA4 tölfræði

Sérpöntun

Vikuleg samantekt á tölfræði sem Google Analytics safnar saman er send í tölvupósti til stjórnenda. Samantektin inniheldur til að mynda fjölda heimsókna, hvaða síður eru mest skoðaðar, tími sem notandi ver á síðunni, hvaðan umferðin er að koma (samfélagsmiðlar, leitarvélar, bein traffík o.sfr.), frá hvaða landi, úr hvaða tæki / stýrikerfi o.mfl.

Fyrir þá sem hafa áhuga á að fylgjast með umferð á síðuna sína er þetta mikil hagræðing þar sem ekki þarf að skrá sig inn á Google Analytics síðuna sjálfa eða inn í WordPress, né heldur stauta sig fram úr Google skýrslum sem eru ekkert sérstakt léttmeti að lesa.

Þessi atriði eru ekki partur af þjónustuframboði

Við sjáum ekki um hýsingu á vefsíðum eða tölvupósti, uppsetningu á tölvupósti eða öryggisafritun.

Hýsing á vefsíðu og tölvupóst

Character vefstúdíó býður ekki upp á hýsingar á vefsíðum eða tölvupósti og er ekki þjónustuaðili fyrir slíka þjónustu.

Það er undir hverjum og einum að velja sér sinn hýsingaraðila. Unnið er með hýsingaraðila hvers og eins að þeim verkefnum sem fylgja hverju vefsvæði fyrir sig. Hýsingaraðilar eru sérfræðingar í þeim tölvubúnaði sem þarf til að geyma þann hugbúnað sem settur er upp á vefsvæði.

Margir velja að hafa tölvupóstinn sinn hjá Google, Office 365 eða öðrum fyrirtækjalausnum. Sérhæfðir aðilar taka að sér að aðstoða við uppsetningu á slíkum kerfum.

Öryggisafritun

Þrátt fyrir að ýtrustu varúðar sé gætt gæti vefurinn orðið fyrir netárás, vandamál komið upp hjá hýsingaraðila eða stúrinn starfsmaður sett allt í bál og brand við starfslok. Alltaf þarf að gæta að því að lykilorð séu uppfærð og örugg inn á vefsvæði og að skipt sé um þau reglulega.

Það er því mikilvægt að eiga regluleg afrit af síðunni sem hægt er að nálgast þannig að enduruppsetning sé möguleg.

Ábyrgð á öryggisafritun liggur hjá eiganda vefsíðunnar í gegnum viðkomandi hýsingaraðila og er mikilvægt að hver og einn kynni sér þau mál vel hjá viðeigandi aðila.

Scroll to Top