Um Character

Birna María er eigandi og stafrænn hönnuður Character vefstúdíó

Markmið

Markmiðið er að veita ávallt faglega og framúrskarandi þjónustu.

Gildi

Að vinna náið með viðskiptavinum að þeirra stafrænu vegferð. Að leggja mig fram við að finna þær leiðir sem henta hverjum og einum.

Þjónusta

Birna María

Vefstjóri, stafrænn hönnuður og eigandi

Ég hef starfað við markaðsmál, vefhönnun og viðburðastjórnun með einum eða öðrum hætti frá 2003 og hef víðtæka reynslu af vinnslu á vef-, markaðs- og kynningarmálum frá ýmsum hliðum. 

Á meðal þeirra fyrirtækja sem ég starfaði fyrir áður en ég hóf sjálfstæðan rekstur eru hugbúnaðarfyrirtæki, alþjóðlegt smásölufyrirtæki, hátækni sprotafyrirtæki, ráðstefnu- viðburða- og hvataferðafyrirtæki, fjarskiptafyrirtæki og ferðaþjónustufyrirtæki. Á þessum árum fékk ég tækifæri til að vinna með öflugu fólki og sterkum vörumerkjum í ólíkum geirum og rekstrarumhverfi, bæði innanlands sem utan.

Frá ársbyrjun 2018 hef ég starfað sjálfstætt undir merkjum Character vefstúdíó og á þeim tíma unnið með fjölbreyttum hópi fólks og fyrirtækja í ólíkum geirum að þeirra stafrænu vegferð í vef- og markaðsmálum.

Í verkfærakistunni er að finna öll helstu forrit og þjónustur sem tengjast stafrænni markaðssetningu, vefhönnun og myndvinnslu. Ég hef bætt við mig fjölda námskeiða til viðbótar við háskólanámið og er fljót að tileinka mér nýja tækni og þekkingu. 

Að auki bý ég yfir víðtækri reynslu af viðburðastjórnun en ég hef sett upp og haldið utan um fjölda smærri og stærri viðburða eins og starfsdaga, árshátíðir og hvataferðir. Árið 2006 verkefnastýrði ég 100 ára afmæli Símans og árin 2009 – 2018 átti ég þátt í uppbyggingu, framkvæmd og markaðssetningu tónleikaverkefnis.

Þessi fjölbreytti bakgrunnur gerir mér kleift að setja mig í spor annarra og sjá tækifærin frá sjónarhóli þess sem ég vinn með hverju sinni. Þetta hefur reynst mér verðmætur eiginleiki sem þau sem ég starfa fyrir kunna vel að meta.

Gott markaðsstarf er „teamwork“
Farsælt samstarf um gott markaðsstarf er teymisvinna þeirra sem að því koma. Frá þeim vinkli kemur sér vel bakgrunnur minn úr keppnisíþróttum, en ég var leikmaður Vals í knattspyrnu á árum áður, spilaði nokkra leiki með landsliðum Íslands í fótbolta og vann mér inn fullan skólastyrk sem leikmaður í háskólaboltanum í BNA árin 1997 – 2001.

Ég nálgast mína vinnu frá þessu sjónarhorni og markmið mitt er ávallt að vera liðsfélagi þeirra sem ég starfa fyrir.

Útivist, golf, fjallahjólreiðar og skíði eru áhugamálin utan vinnunnar. Þar hleð ég orkubirgðirnar og fæ mínar bestu hugmyndir.

Starfsreynsla

Menntun

Character vefstúdíó

Af hverju nafnið Character?

Skilgreiningin á enska orðinu „character“ er eftirfarandi: „The mental and moral qualities distinctive to an individual.“

Fyrirtæki og félagasamtök hafa einnig sinn ákveðna karakter (e. character) sem mikilvægt er að skíni í gegnum ásýnd viðkomandi.

Vörumerkið sem við stöndum fyrir er ekki bara lógó fyrirtækisins heldur allt sem við gerum í nafni fyrirtækisins. Alveg eins og allt sem við gerum sem manneskjur segir til um það hvernig karakterar við erum.

Scroll to Top