Terms & Conditions
Character ehf.
Greiðsluskilmálar
Síðast uppfært 30. júní 2024
Almennir greiðsluskilmálar
Character ehf birtir verð fyrir þjónustuleiðir á vefsvæði sínu og má þær finna hér. Character ehf getur breytt verði á þjónustuleið með eins mánaða fyrirvara og skal breytingin kynnt á heimasíðu félagsins.
Skráður notandi ber ábyrgð á greiðslum til Character ehf. vegna notkunar þjónustu, óháð því hvort rétthafi hafi heimilað notkunina eða ekki.
Gjalddagi þjónustu er fyrsti dagur hvers mánaðar og eindagi fimm dögum síðar, nema um annað sé samið. Verk unnin í tímavinnu eru útskulduð síðasta dag mánaðar og eindagi fimm dögum síðar.
Sé reikningur greiddur eftir eindaga, ber viðskiptavini að greiða dráttarvexti frá gjalddaga til greiðsludags auk kostnaðar við innheimtu (Arion banki).
Athugasemdir við útgefna reikninga skulu gerðar án tafar og eigi síðar en á eindaga ella teljast reikningar samþykktir. Fyrirspurnum er varðar reikningamál er svarað í síma 519 5588 eða í gegnum netfangið bokhald@character.is.
Uppsögn á þjónustu skal hafa borist Character ehf með skriflegum hætti frá tengsla netfangi áskrifanda a.m.k. 10 dögum fyrir þau mánaðarmót sem uppsögn skal gilda frá, ella tekur uppsögnin gildi um næstu mánaðarmót þar á eftir.
Character ehf áskilur sér rétt til að loka fyrir þjónustu 30 dögum eftir eindaga og eyða gögnum viðskiptavinar ef reikningar hafa ekki verið greiddir 90 daga frá eindaga.
Mál sem rísa kunna vegna brota á samningi þessum eða vegna ágreinings um túlkun hans skulu rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur ef ekki tekst að leysa þau með samkomulagi.
Character ehf.
Kt. 681119-0270