fbpx

About

Birna María er eigandi og stafrænn hönnuður Character vefstúdíó

Markmið

Markmiðið er að veita ávallt faglega og framúrskarandi þjónustu.

Gildi

Að vinna náið með viðskiptavinum að þeirra stafrænu vegferð. Að leggja mig fram við að finna þær leiðir sem henta hverjum og einum.

Services

Eigum við að vinna saman?

Orð eru til alls fyrst – ég hlakka til að heyra frá þér!

Heyrumst!
Birna María ....😘

Birna María

Ég hef starfað við vef- og markaðsmál með einum eða öðrum hætti frá 2003 og hef víðtæka reynslu af vinnslu á sölu-, markaðs- og kynningarefni frá ýmsum hliðum. 

Á meðal þeirra sem ég starfaði fyrir áður en ég stofnaði Character vefstúdíó eru hugbúnaðarfyrirtæki, fjarskiptafyrirtæki, ráðstefnu- viðburða- og hvataferðafyrirtæki, ferðaþjónustufyrirtæki og hátæknifyrirtæki sem framleiðir sjálfstýrða kafbáta. Frá ársbyrjun 2018 hef ég unnið með fjölbreyttum hópi fólks og fyrirtækja að þeirra stafrænu vegferð og við það að koma þeirra skilaboðum á framfæri.

Í verkfærakistunni minni er að finna öll helstu forrit og þjónustur sem tengjast stafrænni markaðssetningu, vefhönnun og myndvinnslu. Ég hef bætt við mig fjölda námskeiða til viðbótar við háskólanámið og er fljót að tileinka mér nýja tækni og þekkingu. Jafnframt hef ég mikla reynslu af verkefnastýringu, rekstri og áætlunargerð. 


Að auki bý ég yfir víðtækri reynslu af viðburðastjórnun 
en ég hef sett upp og haldið utan um fjölda smærri og stærri viðburða eins og starfsdaga, árshátíða og hvataferða á vegum fyrri vinnuveitenda. Ég var til dæmis verkefnastjóri 100 ára afmælis Símans árið 2006 þar sem haldin var 500 manna ráðstefna í Borgarleikhúsinu og 2000 manna veisla í Laugardalshöll, sama daginn. Ég átti jafnframt stóran þátt í uppbyggingu, markaðssetningu og framkvæmd tónleika árin 2009 – 2018.

Þessi fjölbreytti bakgrunnur gerir mér kleift að setja mig í spor annarra og sjá tækifærin frá sjónarhóli þess sem ég starfa fyrir hverju sinni. Þetta hefur reynst mér verðmætur eiginleiki sem mínir viðskiptavinir kunna vel að meta.

Gott markaðsstarf er „teamwork“
Farsælt samstarf um gott markaðsstarf er teymisvinna þeirra sem að því koma. Frá þeim vinkli kemur sér vel bakgrunnur minn úr keppnisíþróttum, en ég var leikmaður Vals í knattspyrnu á árum áður, spilaði nokkra leiki með landsliðum Íslands í fótbolta og vann mér inn fullan skólastyrk sem leikmaður fyrir háskóla í BNA þar sem ég var við nám og knattspyrnuiðkun árin 1997 – 2001. Ég nálgast mína vinnu frá þessu sjónarhorni og markmið mitt er ávallt að leggja mig fram við að finna þær leiðir sem best henta hverjum og einum og vera liðsfélagi þeirra sem ég starfa fyrir.  

Útivist, golf, fjallahjólreiðar og skíði eru áhugamálin utan vinnunnar. Þar hleð ég orku birgðirnar og fæ mínar bestu hugmyndir. 

Menntun & starfsreynsla

Skilgreining á Character

Af hverju nafnið Character?

Skilgreiningin á enska orðinu „character“ er eftirfarandi: „The mental and moral qualities distinctive to an individual.“

Fyrirtæki og félagasamtök hafa einnig sinn ákveðna karakter (e. character) sem mikilvægt er að skíni í gegnum ásýnd viðkomandi.

Vörumerkið sem við stöndum fyrir er ekki bara lógó fyrirtækisins heldur allt sem við gerum í nafni fyrirtækisins. Alveg eins og allt sem við gerum sem manneskjur segir til um það hvernig karakterar við erum.

Reviews

Scroll to Top