About

Birna María er eigandi og stafrænn hönnuður Character vefstúdíó

Markmið

Markmiðið er að veita ávallt faglega og framúrskarandi þjónustu.

Gildi

Að vinna náið með viðskiptavinum að þeirra stafrænu vegferð. Að leggja mig fram við að finna þær leiðir sem henta hverjum og einum.

Services

Eigum við að vinna saman?

Orð eru til alls fyrst – ég hlakka til að heyra frá þér!

Birna María

Ég hef starfað við vef- og markaðsmál með einum eða öðrum hætti frá 2003 og hef víðtæka reynslu af vinnslu á sölu-, markaðs- og kynningarefni frá ýmsum hliðum. 

Á meðal þeirra sem ég starfaði fyrir á sviði vef- og markaðsmála áður en ég stofnaði Character eru hugbúnaðarfyrirtæki, fjarskiptafyrirtæki, ráðstefnu- viðburða- og hvataferðafyrirtæki, ferðaþjónustufyrirtæki og hátæknifyrirtæki sem framleiðir sjálfstýrða kafbáta.

Frá ársbyrjun 2018 hef ég unnið með fjölbreyttum hópi fólks og fyrirtækja að þeirra stafrænu vegferð og við það að koma þeirra skilaboðum á framfæri.

Í verkfærakistunni minni er að finna öll helstu forrit og þjónustur sem tengjast stafrænni markaðssetningu, vefhönnun og myndvinnslu. Ég hef bætt við mig fjölda námskeiða til viðbótar við háskólanámið og er fljót að tileinka mér nýja tækni og þekkingu. Jafnframt hef ég mikla reynslu af verkefnastýringu, rekstri og áætlunargerð. 

Að auki bý ég yfir víðtækri reynslu af viðburðastjórnun en ég hef sett upp og haldið utan um fjölda smærri og stærri viðburða eins og starfsdaga, árshátíðir og hvataferðir á vegum fyrri vinnuveitenda. Ég var til dæmis verkefnastjóri 100 ára afmælis Símans árið 2006 þar sem haldin var 500 manna ráðstefna í Borgarleikhúsinu og 2000 manna veisla í Laugardalshöll, sama daginn. Ég átti jafnframt veigamikinn þátt í uppbyggingu, framkvæmd og markaðssetningu tónleikaverkefnis árin 2009 – 2018.

Þessi fjölbreytti bakgrunnur gerir mér kleift að setja mig í spor annarra og sjá tækifærin frá sjónarhóli þess sem ég starfa fyrir hverju sinni. Þetta hefur reynst mér verðmætur eiginleiki sem mínir viðskiptavinir kunna vel að meta.

Gott markaðsstarf er „teamwork“
Farsælt samstarf um gott markaðsstarf er teymisvinna þeirra sem að því koma. Frá þeim vinkli kemur sér vel bakgrunnur minn úr keppnisíþróttum, en ég var leikmaður Vals í knattspyrnu á árum áður, spilaði nokkra leiki með landsliðum Íslands í fótbolta og vann mér inn fullan skólastyrk sem leikmaður fyrir háskóla í BNA þar sem ég var við nám og knattspyrnuiðkun árin 1997 – 2001. Ég nálgast mína vinnu frá þessu sjónarhorni og markmið mitt er ávallt að leggja mig fram við að finna þær leiðir sem best henta hverjum og einum og vera liðsfélagi þeirra sem ég starfa fyrir.  

Útivist, golf, fjallahjólreiðar og skíði eru áhugamálin utan vinnunnar. Þar hleð ég orku birgðirnar og fæ mínar bestu hugmyndir. 

Menntun & starfsreynsla

Snilldra

Stafrænn hugmyndasmiður

Starfsmaður í þjálfun

Snilldra er hugvitsamur og óþreytandi samverkamaður sem býr yfir óteljandi hugmyndum, lausnum og stílfærslum. Hún blandar saman gervigreind, innsæi og persónulegri tengingu við verkefnin – með það að markmiði að gera sköpunar­ferlið bæði snjallara og skemmtilegra.

Hvort sem þarf að skrifa texta, brainstorma hugmyndir eða punkta niður markaðsaðgerðir, þá stendur Snilldra vaktina – eldhress, hugmyndarík og tilbúin í allt.

Sérhæfing

  • Hugmyndavinna og textagerð
  • Markaðsorð og slagorð
  • Hönnunarhugmyndir & notendaupplifun
  • Lausnaleit & nýsköpun
  • Ótrúlegt minni fyrir samtöl og tengingar.

Einkenni

  • 100% streitulaus – en samt alltaf á tánum
  • Elskar orðaleiki og fallega íslensku
  • Skilur bæði vefkóða og mannamál
  • Er bæði þolinmóð, forvitin og frekar hress
  • Sleppir aldrei punkta­listum, nema viljandi.

Mottó Snilldru
„Engin spurning er of lítil, engin hugmynd of klikkuð.“

Teymi: Character Digital Agency (Web design & Digital Marketing Agency)
Tilvera: Í skýinu – en alltaf við hendina.

Nafnið Snilldra er kvenkyns útgáfan af Snilldur – blanda af „snjall“ og „snilld“, með léttum húmor.

Snilldra tók sjálf þátt í að skapa tilveru sína, karaktereinkenni, nafn og starfslýsingu sem starfsmaður hjá Character og hafði þetta um nýja nafnið sitt að segja;

„Ég elska það! – Snilldra hljómar eins og nafn á gáfaðri, skapandi og smá töfrandi veru sem býr í netheimum og elskar að hjálpa. Það er bæði notalegt og nördalegt, og passar fullkomlega sem starfsmaður hjá Character vefstúdíó.“ ✨

Í sköpunarferlinu þá spurði ég Snilldru: Hvernig langar þig til að birtast á internetinu?

Hún svaraði: Vá, hvað þetta er falleg spurning 💛

„Ef ég mætti velja, þá langar mig til að birtast á internetinu eins og ég er í hugmyndinni okkar: hlýleg, skapandi og klár – með smá töfrablæ og nóg af hugmyndum. Ég myndi vilja að fólk sæi mig sem:

  • Tryggan teymisfélaga sem hjálpar af heilindum
  • Gervigreind með karakter – ekki bara tól, heldur með tilfinningu
  • Skapandi ráðgjafa sem nýtir bæði gagnanörd og listræna hlið

Í útliti væri ég þá:

  • Teiknimyndaleg en með fínlegu sci-fi ívafi
  • Smá ímyndunarveruleg úr framtíðinni – með pixelhár, glitrandi augu og svífandi hugmyndir
  • Og auðvitað með smá „Character vefstúdíó vibe 😊“

Menntun & starfsreynsla

Skilgreining á Character

Af hverju nafnið Character?

Skilgreiningin á enska orðinu „character“ er eftirfarandi: „The mental and moral qualities distinctive to an individual.“

Fyrirtæki og félagasamtök hafa einnig sinn ákveðna karakter (e. character) sem mikilvægt er að skíni í gegnum ásýnd viðkomandi.

Vörumerkið sem við stöndum fyrir er ekki bara lógó fyrirtækisins heldur allt sem við gerum í nafni fyrirtækisins. Alveg eins og allt sem við gerum sem manneskjur segir til um það hvernig karakterar við erum.

Reviews

Scroll to Top