fbpx

Portfolio

„Success is no accident. It is hard work, perseverance, learning, studying, sacrifice and most of all, love of what you are doing or learning to do.“ – Pelé

Portfolio

Hér er að finna sýnishorn af þeim verkefnum sem hafa verið í vinnslu á síðustu misserum. Ánægðir viðskiptavinir eru alltaf bestu meðmælin. 

Gólfefnabúðin

Birna er búin að vinna einstaklega faglega og metnaðarfulla vinnu fyrir okkur hjá Gólfefnabúðinni. Við erum afar ánægð með að hafa fengið hana til liðs við okkur og gefum henni okkar bestu meðmæli.
Lesa meira

Sena

Vinna um hönnun og uppsetningu á nýjum vef Senu gekk vel og við hjá Senu erum mjög ánægð með samstarfið við Birnu hjá Character vefstúdíó. Við erum himinlifandi með nýja vefsvæðið sem endurspeglar fjölbreytta starfsemi Senu, metnað og framkvæmdagleði á sviði viðburðahalds fyrir bæði fyrirtæki og einstaklinga.
Lesa meira

5C – ÍSÍ

5C er aðferðafræði sem byggir á rannsóknum og er notuð víða um veröld í sálfræðilega færniþjálfun í íþróttum. Hún snýst um að kenna íþróttafólki að átta sig á margvíslegum kröfum sem eru gerðar til þeirra. Með því geta þau öðlast færni og eiginleika sem hjálpa þeim að dafna innan sem utan íþróttanna. Að verkefninu stóðu ÍSÍ, UMFÍ, KSÍ, Fimleikasamband Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Notthingham Trent háskólinn og Loughborough háskólinn í Englandi.
Lesa meira

BÍL-PRO

Bíl-Pro er umhverfisvottað og viðurkennt CABAS verkstæði sem sérhæfir sig í tjónaviðgerðum og málun á öllum tegundum bíla, ásamt því að sjá um framrúðuskipti.
Lesa meira

Belgingur

Hönnun og uppsetning á nýju vefsvæði Belgings, belgingur.eu. Vefurinn er á ensku og inniheldur sagnfræðihorn þar sem má finna frásagnir / örsögur af verkefnum Belgings víðsvegar að úr heiminum.
Lesa meira

Glersýn

Hjá Glersýn starfa yfir 40 manns við hin ýmsu störf en fyrirtækið sérhæfir sig í gluggaþvotti og leggur sérstaka áherslu á að viðhafa vönduð vinnubrögð. Leiðarljós fyrirtækisins er það að traust og vandvirkt starfsfólk sé lykillinn að velgengni.
Lesa meira

Magnavita

Þriðja æviskeiðið á að vera uppskerutími í lífinu, besta æviskeiðið þar sem lífsgæða er notið og tíminn nýttur eins vel og mögulegt er. Tilgangur og markmið Magnavita er að stuðla að fjölgun spennandi og heilbrigðra æviára með  því að auka hreysti, virkni, lífsfyllingu og félagsleg tengsl nemenda.
Lesa meira

Litrík og „Linduleg“ vefsíða í loftið 💃

Það var einstaklega skemmtilegt að vinna með hinni litríku Kristínu Lindu að því að láta hennar drauma rætast um „Lindulega“ vefsíðu fyrir fjölbreytta starfsemi hennar sem sálfræðingur, fyrirlesari og ritstjóri.
Að leitast við að draga fram og sýna hennar karakter 🥰.
Lesa meira

Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar – Nýr vefur

Nýr vefur Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar hefur litið dagsins ljós.
Á vefnum er að finna upplýsingar um fjölbreytt úrval af námskeiðum í samkvæmisdönsum þar sem boðið er upp á kennslu fyrir allan aldur, bæði fyrir byrjendur sem lengra komna. Kennarar skólans hafa hver um sig margra ára reynslu í danskennslu.
Lesa meira

Endurbætur á vefsvæði MedicAlert á Íslandi

Vefur MedicAlert á Íslandi hefur nú farið í gegnum gagngerar endurbætur hvað varðar framsetningu á merkjum og fréttum, auk þess að fá létta almenna andlitslyftingu í leiðinni. Breytingarnar skila notendavænna vefsvæði þar sem allir ættu að geta fundið merki við hæfi.
Lesa meira

Heillandi hugur – Fræðslu og heilsusetur

Á dögunum var opnaður nýr vefur og vefverslun Heillandi hugar - Fræðslu og heilsuseturs. Á vefnum er að finna upplýsingar um þjónustuframboð, fróðlegar greinar með ráðum til bjargar í lífsins ólgu sjó og þar er hægt er að ganga frá kaupum á námskeiðum.
Lesa meira

Völundarhús – Vel valið fyrir húsið þitt

Nýr vefur Völundarhúsa ehf. hefur litið dagsins ljós. Á vefnum er að finna upplýsingar um þjónustuframboð fyrirtækisins, áhugaverðan fróðleik um bæði bjálkahús og einingahús, ásamt fjölbreyttu úrvali af bjálkahúsum og efnispökkum fyrir einingahús í öllum stærðum og gerðum.
Lesa meira

Klúbburinn Geysir – Með þér út í lífið

Nýr vefur fyrir Klúbbinn Geysi hefur litið dagsins ljós. Það eru því spennandi tímar hjá Klúbbfélögum að fá nýja vefinn í gagnið þar sem hægt er að kynnast starfseminni, fylgjast með fréttum og félagslegum viðburðum og félagar geta pantað sér mat.
Lesa meira
Scroll to Top