Gólfefnabúðin er lítið fyrirtæki með mikla þekkingu, vandaða framleiðendur og stórkostlegt vöruúrval. Fyrirtækið leggur mikið upp úr góðri þjónustu og miklum gæðum í gólfefnum. Hlutverk þess er að bjóða heildarlausnir í gólfefnum fyrir heimilið og vinnustaðinn á góðum verðum.
Meðal verkefna fyrir Gólfefnabúðina;
- Vefhönnun, viðhald og þróun á vefsvæði frá því að vefurinn var opnaður vorið 2021
- Hönnun, uppsetning og birtingar á stafrænum auglýsingaherferðum í META og Google
- Vinna við Google platforms svo sem Ads, Analytics, Search Console, Business Manager ásamt Pixel, META og önnur gagnadrifin greiningarverkfæri til bestunar á auglýsingaherferðum, leitarorðum og vefsvæði
- Uppsetning á markpóstkerfi og tenging við vefsvæði
- Hönnun og uppsetning á fjölbreyttu prentefni
- Ráðgjöf og samvinna um vef- og markaðsmál félagsins.